
Gavin Lucas, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands, hefur hlotið Rivers Medal viðurkenninguna frá bresku mannfræðistofnuninni The Royal Anthropological Institute. Viðurkenningin var veitt við hátíðlega athöfn i Lundúnum í liðinni viku. Gavin hlaut verðlaunin fyrir framlag sitt til kennilegrar fornleifafræði og aðferðafræði.
Rivers Medal verðlaunin hafa verið veitt síðan 1923 í minningu William Halse Rivers sem var forseti stofnunarinnar. Viðurkenningin er mikill heiður og margir af fremstu fræðimönnum á sviði mannfræði og fornleifafræði hafa áður hlotið verðlaunin og má þar nefna A.C. Haddon, Edward Westermarck, Raymond Firth, Meyer Fortes, Edward Evans-Pritchard og Bronislaw Malinowski. Af yngri handhöfum má nefna Max Gluckman, Mary Douglas, Rodney Needham og J.R. Goody.