Rannsóknastofa í fornleifafræði var stofnuð innan Hugvísindastofnunar árið 2021. Rannsóknastofan er formlegur vettvangur fyrir vísindalegt samstarf og rannsóknir í fornleifafræði, sem og fyrir önnur verkefni sem varða almenn málefni og miðlun á fornleifafræði.

Gjaldgengir meðlimir Rannsóknastofa í fornleifafræði eru fastráðnir kennarar, nýdoktorar og doktorsnemar í fornleifafræði við Háskóla Íslands, ásamt öðrum virkum fræðimönnum innan fornleifafræði í sterkum tengslum við Háskólann.

Þjónusta

Rannsóknastofa í fornleifafræði býður uppá valda ráðgjöf gegn gjaldi. Þar á meðal t.d. ráðgjöf í almennum málefnum er varða þjóðminjar, og sérfræðigreiningar (t.d. pXRF). Fyrir frekari upplýsingar hafið endilega samband við stjórn.

Image
""